Fréttir
  • Frítt verður í Strætó og landsbyggðarstrætó 22. september 2023.

Frítt í Strætó og landsbyggðarstrætó 22. september

Í tilefni af bíllausa deginum

18.9.2023

Á bíllausa daginn 22. september verður frítt í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og með landsbyggðarstrætó. Bíllausi dagurinn er haldinn í tilefni af evrópsku samgönguvikunni sem er frá 16. - 22. september.

Strætó hefur tekið þátt í samgönguvikunni með viðburðinum Bíllausi dagurinn undanfarin ár og í ár ákvað Vegagerðin að taka einnig þátt en Vegagerðin rekur og ber ábyrgð á landsbyggðarstrætó. Með því verður frítt í Strætó á milli byggðarlaga fyrsta sinn.

Þetta er því tilvalið tækifæri fyrir fólk til að breyta út af vananum, hvíla bílinn og velja fjölbreyttari og vistvænni ferðamáta.

Sjá leiðarnet landsbyggðarstrætó:

Nánari upplýsingar

Dagskrá samgönguviku