Fréttir
  • Unnið er að breikkun Breiðholtsbrautar.
  • Arnarnesvegur. Yfirlitsmynd yfir framkvæmdasvæðið.
  • Laus jarðefni munu nýtast í önnur verkefni.
  • Unnið er við uppsteypu landstöpuls nýrrar brúar.

Framkvæmdir vegna Arnarnesvegar á áætlun

Jarðefni úr vegstæði notað í nýjan Vetrargarð

29.12.2023

Framkvæmdir við Arnarnesveg, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut, hófust um miðjan ágúst. Undanfarið hefur verið unnið að breikkun Breiðholtsbrautar sunnan núverandi vegar. Jarðefni sem þarf að fjarlægja er m.a. notað í fyllingar í nýjan Vetrargarð sem Reykjavíkurborg er með í undirbúningi. Í Elliðaárdal er búið að malbika og setja lýsingu á hjáleið fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem eiga leið um svæðið.

Laus jarðefni notuð í nýjan Vetrargarð

Frá því að verkið hófst hefur verið unnið að breikkun Breiðholtsbrautar sunnan núverandi vegar, milli Vatnsendahvarfs og Jaðarsels. Í nýju vegstæði Arnarnesvegar sunnan Breiðholtsbrautar hafa laus jarðefni, sem ekki eru burðarhæf, verið fjarlægð. Þegar er búið að taka laus jarðefni á kaflanum frá Breiðholtsbraut og um 200 metra suður fyrir Útvarpsstöðvarveg. Jarðefnið verður notað til fyllingar í nýjan Vetrargarð sem er í uppbyggingu austan Jafnasels, á svæðinu þar sem skíðalyftan var áður staðsett. Í vegstæði Arnarnesvegar norðan Breiðholtsbrautar er unnið við uppmokstur lausra óburðarhæfra jarðefna. Það efni verður notað í fláa vegarins í Elliðaárdalnum.

Einnig er unnið við uppsteypu landstöpuls nýrrar brúar yfir Breiðholtsbraut að norðan. Vegna lokana á gang- og hjólastígum á framkvæmdasvæðinu í Elliðaárdal var malarstígur sem liggur nær Elliðaánum á móts við Fella- og Hólakirkju til suðurs á móts við Vatnsendahvarf malbikaður og sett var upp lýsing við stíginn. Stígurinn er hjáleið fram hjá framkvæmdasvæðinu á meðan verki stendur.

Nánari upplýsingar um framkvæmdirnar.

Myndband af Arnarnesvegi.

https://www.youtube.com/watch?v=Mz8K9TlQDT8