Fréttir
  • Flugfélagið Ernir

Flug til Húsavíkur styrkt

Ernir fljúga áfram fimm sinnum í viku

29.9.2023

Flug til Húsvíkur verður styrkt næstu tvo mánuði á meðan að  framtíðarfyrirkomulag þeirra mála verður skoðað. Samkomulag hefur verið gert við flugfélagið Ernir að það fljúgi áfram til Húsavíkur fimm sinnum í viku.

Flugfélagið hefur haldið uppi flugi til Húsavíkur sjö sinnum í viku án þess að það hafi verið styrkt. Nú hefur ríkið tekið ákvörðun um að styrkja fimm ferðir til Húsavíkur í október og nóvember meðan farið er yfir framtíðarfyrirkomulag flugsins.

Fréttatilkynning.