Fjarðarheiðargöng – hvernig breytist ásýndin?
Myndahefti, matsskýrsla, vefsjá og viðaukar.
Myndahefti, þar sem sjá má hvernig
ásýnd umhverfis við Egilsstaði og Seyðisfjörð getur hugsanlega breyst með tilkomu
Fjarðarheiðarganga, má finna á vef Vegagerðarinnar. Gerðar voru ásýndarmyndir fyrir þær leiðir sem teknar eru
fyrir í skýrslu um mat á umhverfisáhrifum; norðurleið, miðleið og suðurleið. Í
heftinu má sjá nýjar veglínur tölvuteiknaðar inn á ljósmyndir. Þess skal geta að ekki er um endanlega verkhönnun að ræða.
Frestur til að skila inn umsögnum um nýja skýrslu Vegagerðarinnar um mat á umhverfisáhrifum Fjarðarheiðarganga er til 5. júlí 2022.
Allar nánari upplýsingar um matsskýrslu Fjarðarheiðarganga má nálgast í gegnum þennan hlekk.
Þar má finna skýrsluna í heild sinni , vefsjá um Fjarðarheiðargöng og ýmsa viðauka.