Fréttir
  • Grjótverja þarf allan veginn og er það verk langt komið.
  • Kort sem sýnir útboðskaflann
  • Nýja veglínan sveigir austur fyrir þorpið og kemur til með að liggja milli þess og Eyjafjarðarár. Mynd/Vilhelm Gunnarsson
  • Unnið að færslu Eyjafjarðarbrautar austur fyrir Hrafnagil.

Eyjafjarðarbraut vestri færð austur fyrir Hrafnagil

Verklok í júlí 2024

7.12.2023

Framkvæmdir standa yfir við Eyjafjarðarbraut vestri (821). Verkið felst í nýbyggingu Eyjafjarðarbrautar vestri á um 3,11 km kafla fram hjá þéttbýlinu við Hrafnagil. Verkinu á að ljúka í júlí 2024.

Verkefnið ber heitið Eyjafjarðarbraut vestri (821) um Hrafnagil. Tilboð í verkið voru opnuð 8. mars 2022 og í framhaldi samið við lægstbjóðendur, GV Gröfur ehf. á Akureyri.

Verkið felst í nýbyggingu Eyjafjarðarbrautar vestri á um 3,11 km kafla fram hjá þéttbýlinu við Hrafnagil. Einnig er innifalið í verkinu bygging heimreiða og tenginga, samtals um 0,25 km. Eyjafjarðarbraut vestri, Miðbraut og tengingar inn í þéttbýlið verða 8.0 m breiðar með bundnu slitlagi. Heimreiðar verða 4,0 m breiðar með bundnu slitlagi.

Þéttbýlið í Hrafnagili hefur byggst hratt upp á undanförnum árum. Síðustu aldamót bjuggu um 135 manns í þorpinu, íbúar voru orðnir 260 fyrir fimm árum en eru í dag um 350 (heimild: Hagstofan).

Núverandi þjóðvegur liggur í gegnum þorpið og óskaði sveitarfélagið Eyjafjarðarsveit eftir því að vegurinn yrði færður út fyrir þorpið, fyrst og fremst til að auka umferðaröryggi enda er hraði umferðar í gegnum þorpið oft mikill. Meðalumferð á ári (ÁDU) um Eyjafjarðarbraut vestri árið 2020 var um 1470 bílar á sólarhring.

Með auknum íbúafjölda hefur uppbygging íbúðarhúsnæðis í þorpinu vaxið. Land sem verður til við færslu þjóðvegarins er dýrmætt byggingarland sem mun stuðla að enn meiri uppbyggingu í þorpinu.

Framkvæmdir við nýja veginn hófust sumarið 2022. Nýja veglínan sveigir austur fyrir þorpið og kemur til með að liggja milli þess og Eyjafjarðarár. Fyrsta verkefni verktakans var að setja fyllingar og farg á hina nýju veglínu. Þar sem vegurinn mun liggja eftir sléttu landi á eyrum Eyjafjarðarár, þar sem jarðvegur er bæði sendinn og leirkenndur, var nauðsynlegt að hann fengi að síga í dágóðan tíma.

Vinnu við fyllingar, fláafleyga og ræsalögn er lokið. Lítilsháttar vinna er eftir við styrktarlag og grjótvörn, sem klárast vorið 2024. Framkvæmdir hafa legið niðri um tíma vegna kulda og fara að öllum líkindum ekki af stað aftur fyrr en sól hækkar á lofti eftir áramót.

Verklok eru áætluð 15. júlí 2024. 

Tilboð í verkið

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Áætlaður verktakakostnaður 496.698.973 100,0 123.145
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði 489.850.915 98,6 116.297
Nesbræður ehf., Akureyri 478.521.007 96,3 104.967
G.Hjálmarsson hf., Akureyri 471.437.831 94,9 97.884
G.V.Gröfur ehf. Akureyri 373.553.668 75,2 0

Helstu magntölur eru:

  • Fylling úr námum 65.700 m3
  • Fylling úr skeringum 40.830 m3
  • Fláafleygar úr námum 9.060 m3
  • Fláafleygar úr skeringum 6.890 m3
  • Ræsalögn 661 m
  • Styrktarlag 19.290 m3
  • Burðarlag 7.160 m3
  • Rofvörn og síulag 27.070 m3
  • Tvöföld klæðing 32.340 m2
  • Vegrið 2.850 m
  • Frágangur fláa 46.780 m2

 

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttir 5. tbl. 2023 nr. 727.   Áskrift að Framkvæmdafréttum er endurgjaldslaus. Ósk um áskrift sendist á askrift@vegagerdin.is