Fréttir
  • Frá framkvæmdastað.
  • Skipta þurfti um flest ræsi í veginum.
  • Kort af Búrfellsvegi
  • Búrfellsvegur

Búrfellsvegur (351), Klausturhólar - Búrfell

Framkvæmdir á um 4,25 m kafla

20.7.2023

Framkvæmdum við uppbyggingu, breikkun og klæðingu Búrfellsvegar, frá Klausturhólum að Búrfelli lýkur í lok júlí. Verktaki er Suðurtak ehf. á Selfossi sem átti lægsta boð í verkið, um 30 m.kr. undir áætluðum verktakakostnaði.

„Framkvæmdir hafa gengið mjög vel. Þær hófust í ágúst í fyrra en þar sem vorið var mjög kalt tafðist verkið um nokkrar vikur,“ segir Aron Bjarnason, umsjónarmaður verksins Búrfellsvegur (351), Klausturhólar – Búrfell. Verklok áttu að vera 15. júní 2023 en verða í lok júlímánaðar. 

Framkvæmdin nær yfir 4,25 km kafla sem nær frá slitlagsenda nærri Klausturhólum að slitlagsenda við Búrfell. Þetta var áður hefðbundinn malarvegur en framkvæmdin er fjármögnuð af tengivegafé. 

Verkið fólst í styrkingu og klæðingu bundins slitlags ásamt lagfæringu núverandi vegar í 6 m breiðan veg með 5,8 m breiðu bundnu slitlagi og 2 x 10 cm breiðum malaröxlum. Endurnýja þurfti flest ræsi í veginum, færa nokkrar vegtengingar og á kafla hliðraðist vegurinn allur og er þar um alveg nýjan veg að ræða. Einnig voru girðingar færðar og lagaðar.

Umferð um Búrfellsveg er ekki þung. ÁDU (meðalumferð á dag yfir árið) er um 234 bílar, SDU (meðalumferð á dag yfir sumarmánuðina) er 288 bílar og VDU (meðalumferð á dag yfir vetrarmánuðina) er 207 bílar. Hins vegar hefur umferð þungra bíla aukist nokkuð um þennan veg síðastliðin ár. 

Verktaki framkvæmdanna er Suðurtak ehf. á Selfossi sem bauð um 179 m.kr. í verkið, en áætlaður verktakakostnaður var 209 m.kr.

Helstu magntölur framkvæmdarinnar eru: 

- Skeringar 5.000 m3 

- Styrktarlag 0/63 7.900 m3 

- Burðarlag 0/22 6.000 m3 

- Steinefni 8/16 770 m³ 

- Tvöföld klæðing 25.500 m2 

- Frágangur fláa 36.000 m2 

Þessi grein birtist fyrst í Framkvæmdafréttum 3. tbl. 2023, nr. 725 en hefur verið uppfærð vegna breyttra tímasetninga. Áskrift að Framkvæmdafréttum er frí og hægt að gerast áskrifandi með því að senda póst á askrift@vegagerdin.is.