Fréttir
Aukin vetrarþjónusta í nágrenni Þorbjörns
Tryggt að vegir séu færir alla daga
Vegagerðin mun auka eftirlit með ástandi vega í nágrenni fjallsins Þorbjörns vegna óvissustigs almannavarna vegna mögulegrar kvikusöfnunar vestan við fjallið á Reykjanesskaganum. Fylgst verður betur með og gripið til snjómoksturs ef þess þarf.
Vaktstöð Vegagerðarinnar í Reykjavík hefur fengið fyrirmæli um að vera til taks til að
sinna þeirri þjónustu sem almannavarnir óska eftir, en sólarhringsvakt er í vaktstöðinni. Eftirlit verður aukið með ástandinu á Suðurstrandarvegi og Nesvegi og séð verður til þess að þeir verði færir alla daga og
án flughálku. Krýsuvíkurvegur var einnig inni í myndinni fyrst í stað en sú
leið verður að teljast víkjandi. Aðaláherslan verður á að tryggja flóttaleiðir til
austurs og vesturs.
Suðurstrandarvegur hefur verið í 5 daga þjónustu og Nesvegur í 3 daga þjónustu, þessir vegir fara þá í 7 daga þjónustu frá og með í dag.