Fréttir
  • Grindavík 15.1.2024
  • Grindavík 15.1.2024
  • Grindavík 15.1.2024
  • Grindavík 15.1.2024
  • Grindavík 15.1.2024

Ástand vega að og frá Grindavík kannað

Mikið af sprungum, nýjum og eldri sem hafa stækkað austanvert í bænum

15.1.2024

Vegagerðin hefur í dag kannað ástand vega sem liggja að Grindavík og færrar leiðar niður á höfnina í bænum í samráði við almannavarnir. Byrjað var á því að kanna ástand veganna með dróna. Starfsmenn Vegagerðarinnar könnuðu að því loknu skemmdir og sprungur og lögðu mat á vegakerfið. Þetta fór fram í fylgd með björgunarsveitarmönnum. Fyllsta öryggis hefur verið gætt í hvívetna.

Skoðunin fór fram í því skyni að velja bestu leið fyrir flutning á rafstöð, varaaflsstöð, Landsnets niður að höfninni.

Eftir skoðun á Suðurstrandarvegi og leiðinni inn í Grindavík að austanverðu er ljóst að margar sprungur hafa myndast í átökum síðustu sólarhringa. Eldri viðgerðar sprungur hafa opnast og víkkað og nýjar myndast. Ljóst er að þungaflutningar fara ekki þá leið en mestu skemmdirnar í þessari lotu hafa orðið í austanverðum bænum.

Vegagerðarmenn skoðuðu einnig Grindavíkurveg, Norðurljósaveg og Nesveg og ljóst eftir þá skoðun að minni breytingar hafa orðið þar og því fært fyrir þungaflutninga þá leið. Strax var farið af stað með að flytja varaaflsstöðina þá leið til að koma rafmagni á Grindavík.

Vegagerðarstarfsmenn hafa tekið þátt í viðbrögðum og starfsemi viðbragðsaðila í tengslum við jarðhræringarnar undanfarið og fylgdust grannt með framgangi gossins í nótt. Vegagerðin er þátttakandi í gerð varnargarðanna og þróun þeirra m.a. í tengslum vegtengingar til of frá Grindavík en vinna við gerð þeirra stóð í alla nótt. Nú gefst tækifæri til að meta stöðu þeirra og huga að legu nýrra varnargarða og bætingu á þeim sem hafa reistir auk nýtingu vegakerfisins almennt næstu daga og vikur.