Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds er nýr yfirmaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni
Mun hafa yfirumsjón með öllum verkefnum Borgarlínu hjá Vegagerðinni
Arndís mun hafa
yfirumsjón með öllum verkefnum Borgarlínu hjá Vegagerðinni. Borgarlínan er
samstarfsverkefni Vegagerðarinnar, Betri Samgangna og sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu og verður unnin í nánu samstarfi þessara aðila.
Arndís hefur
undanfarin 14 ár unnið hjá OR og Veitum og nú síðast sem forstöðumaður vatns-
og fráveitu. Arndís situr einnig í framkvæmdarstjórn Veitna. Arndís hefur mikla
reynslu af verkefnastjórnsýslu, áætlanagerð og undirbúningi umfangsmikilla
opinberra framkvæmda. Arndís hefur einnig mikla og farsæla reynslu af því að
leiða opinber innviðaverkefni með ólíkum hagaðilum.
Á verkefnastofu
Borgarlínu hjá Vegagerðinni starfa sérfræðingar á sviði samgöngumála og gatna-
og stígahönnunar. Hópurinn samanstendur af starfsmönnum Vegagerðarinnar,
sveitarfélaga og innlendum og erlendum stoðráðgjöfum Borgarlínu.
Arndís mun
hefja störf á nýju ári.