Áframhaldandi samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu
sjö prósenta samdráttur í ágúst
Umferðin á höfuðborgarsvæðinu í ágúst dróst saman um rúmlega sjö prósent í ágúst síðastliðnum. Umferð í ágúst hefur ekki áður dregist jafnmikið saman á svæðinu. Frá áramótum hefur umferðin dregist saman um nærri níu prósent og er það met, reyndar er þetta þrefalt meiri samdráttur en áður hefur mælst.
Milli
mánaða 2019 og 2020
Umferðin
dróst saman um rúmlega 7% milli ágúst mánaða, sem er metsamdráttur í ágúst á milli ára. Mest dróst umferðin saman um snið á Hafnarfjarðarvegi eða um tæp
13% en minnst í sniði á Reykjanesbraut eða um rúmlega 3%. Fara þarf aftur
til ársins 2016 til að finna minni umferð í ágúst.
Frá
áramótum
Núna hefur
umferðin dregist saman um tæp 9%, frá áramótum, miðað við sama tímabil á síðasta
ári. Þetta er einnig metsamdráttur miðað við árstíma, frá upphafi þessarar
samantektar, og um þrisvar sinnum stærri en áður hafði mest mælst en það var
milli áranna 2008 og 2009.
Umferð
eftir vikudögum
Umferð
dróst saman í öllum vikudögum, nú í ágúst miðað við sama mánuð á síðasta ári, en
hlutfallslega mest á laugardögum eða um 8,6% en minnst á mánudögum eða um 2,5%.
Mest var ekið á föstudögum en minnst á sunnudögum.
Horfur út
árið
Nú stefnir
í að samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu, í mælisniðunum þremur, verði um 8,5%.
Gangi þessi spá eftir yrði það langmesti samdráttur í umferð um mælisniðin
þrjú. Mestur mældur samdráttur milli ára, hingað til, varð milli áranna
2009 og 2010 eða 2,4% samdráttur. Þannig hér er framundan langstærsti samdráttur sem
mælst hefur, frá upphafi þessarar samantektar.