Fjallvegir á Austurlandi:
Vegurinn um Fagridal verður ekki opnaður í dag vegna veðurs og snjóflóðahættu.Vegurinn um Fjarðarheiði verður ekki opnaður í dag vegna veðurs.
Vegurinn um Mývatns- og Möðrudalsöræfi mun loka eftir að þjónustutíma líkur kl. 19:30
Athugað verður með opnanir í fyrramálið.
Frá veðurfræðingi
8. feb. kl. 11:10
Annar bakki úr norðri stefnir á landið N- og A-vert
fyrir kvöldið. 14-20 m/s, skafrenningur og hríðarveður með köflum fram á nótt
frá Holtavörðuheiði, norður og austur um á S-verða Austfirði. Lægir heldur í
Öræfum eftir hádegi, en aftur hviðuveður í fyrramálið.
Færð og aðstæður
Suðvesturland: Víðast greiðfært en hálkublettir og skafrenningur á Mosfellsheiði og hálkublettir á nokkrum öðrum leiðum. Hvasst er á Kjalarnesi.
Vesturland: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja og sumstaðar skafrenningur. Blint og skafrenningur er á Svínadal.
Vestfirðir: Hálka, hálkublettir eða snjóþekja er á vegum og éljagangur eða skafrenningur mjög víða. Mjög blint er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum sem og við Króksfjarðarnes.
Norðurland: Víðast hálka eða snjóþekja og mjög víða skafrenningur.
Norðausturland: Snjóþekja eða hálka og víðast hvar skafrenningur. Þungfært er orðið innansveitar í Vopnafirði en lokað er á Hólasandi.
Austurland: Víðast hvar snjóþekja eða þæfingur og él og skafrenningur. Ófært er í Skriðdal, Hróarstungu og á Vatnsskarði eystra. Lokað er á Fjarðarheiði og á Fagradal.
Suðausturland: Hálkublettir eða hálka víðast hvar og sumsstaðar skafrenningur.
Suðurland: Hringvegurinn er nánast auður en sumstaðar er nokkur hálka eða hálkublettir á öðrum vegum. Skafrenningur er Lyngdalsheiði.
Ábending um hálkuvarnir
Kalt veður með stífri norðanátt hefur mótað aðstæður á vegum þannig að hálkuvörn binst illa við yfirborð vegar. Hluti hálkuvarnarefnis fýkur af við dreifingu og öðrum hluta feykir umferð burt. Yfirborð vegar getur því orðið hált áfram þrátt fyrir hálkuvarnir.
Framkvæmdir á Suðurlandsvegi
Vegna vinnu við að breikkun Hringvegar er hámarkshraði takmarkaður við 70 km/klst á um 3 km kafla frá Hveragerði austur að Kotstrandarkirkju. Á afmörkuðum köflum við Varmá og austur fyrir gatnamót að Ölfusborgum er hámarkshraði takmarkaður við 50 km/klst. Einnig á vestri enda Hvammsvegar við vegamótin að Hringvegi. Framúrakstur er bannaður á framkvæmdasvæðinu. Áætluð verklok eru 1. mars nk.
Vaðlaheiðargöng
Leiðbeiningar um verð og greiðsluleiðir er að finna á vefnum https://www.veggjald.is/