Opnun tilboða

Yfirborðsmerkingar, vegmálun öll svæði 2024-2026

5.3.2024

Opnun tilboða 5. mars 2024. Yfirborðsmerkingar akbrauta með málningu á fjórum svæðum Vegagerðarinnar, þ.e.a.s. Suðursvæði, Vestursvæði, Norðursvæði og Austursvæði. Um er að ræða málun miðlína og kantlína á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026.

Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028. 

Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 4.910 km.  

Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:  

  • Miðlínur                     1.950 km 
  • Kantlínur                    2.960 km 
  • Viðverudagar                  80 dagar 

 Verki skal að fullu lokið 1. september ár hvert.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Vegamál Vegmerking ehf., Reykjavík 460.320.000 302,7 322.170
Áætlaður verktakakostnaður 152.084.720 100,0 13.935
Vegamálun ehf., Kópavogi 149.390.000 98,2 11.240
G.I. Halldórsson ehf. og Nordic Roads ehf., Ísafirði 138.150.000 90,8 0