Opnun tilboða

Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

12.3.2024

Opnun tilboða 12. mars 2024. Hafnarstjórn Vopnafjarðar óskaði eftir tilboðum í verkið „Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil “. Helstu verkþættir eru: 

·         Dýpkun á klapparbotni, um 11.157 m3 og sprengd rás fyrir þil.

·         Jarðvinna, fylling og þjöppun.

·         Steypa 42 akkerissteina.

·         Reka niður 106 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

·         Steypa um 137 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2025.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Sjótækni ehf., Reykjavík 659.338.575 123,2 10.245
Hagtak hf., Hafnarfirði 649.093.250 121,3 0
Áætlaður verktakakostnaður 534.986.000 100,0 -114.107