Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2024-2027, Vestur-Barðastrandarsýsla

19.3.2024

Opnun tilboða 19. mars 2024. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í Vestur-Barðastrandarsýslu. Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 30.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2027.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Allt í járnum ehf., Tálknafirði 245.760.000 142,1 64.560
Lás ehf., Bíldudal 181.200.000 104,8 0
Áætlaður verktakakostnaður 172.913.109 100,0 -8.287