Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2023-2026, Raufarhafnarvegamót – Þórshöfn (Hraðútboð)

5.4.2023

Opnun tilboða 4. apríl 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á tleiðinni  Raufarhafnarvegamót – Þórshöfn.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 17.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
B.J Vinnuvélar ehf., Þórshöfn 124.964.040 154,5 42.392
Árni Gunnarsson, Raufarhöfn 97.290.000 120,3 14.718
Enor ehf., Kópaskeri 82.572.000 102,1 0
Áætlaður verktakakostnaður 80.902.500 100,0 -1.670