Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2023-2026, Fljótdalshérað – Vatnsskarð

5.4.2023

Opnun tilboða 4. apríl 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið á leiðinni Fljótdalshérað – Vatnsskarð.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 28.000 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Þ.S Verktakar ehf., Egilsstöðum 157.770.000 111,1 0
Áætlaður verktakakostnaður 141.958.500 100,0 -15.812