Opnun tilboða

Vetrarþjónusta 2023-2026, Fagridalur

5.4.2023

Opnun tilboða 4. apríl 2023. Vetrarþjónusta, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið um Fagradal.

Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, tvö ár í senn.

Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 22.800 km á ári.

Verklok eru í apríl 2026.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Austurverk ehf., Egilsstöðum 143.097.000 132,9 25.647
GS lausnir, Reyðarfirði 130.920.000 121,6 13.470
Þ.S Verktakar ehf., Egilsstöðum 117.450.000 109,1 0
Áætlaður verktakakostnaður 107.645.700 100,0 -9.804