Vestfjarðavegur (60), Fjarðarhornsá og Skálmardalsá
Opnun tilboða 19. desember 2023. Smíði tveggja steinsteyptra eftirspenntra 34 m plötubrúa yfir Fjarðarhornsá og Skálmardalsá, ásamt vegagerð við hvora brú fyrir sig, samtals um 1,8 km. Brýrnar eru beggja vegna við Klettsháls.Heildar magntölur fyrir vegagerðina:
- Bergskering 27.700 m3
- Fyllingar 49.900 m3
- Útjöfnun gamals vegar 14.000 m2
- Fláafleygar 15.700 m3
- Ræsalögn 186 m
- Styrktarlag flutningur og útlögn 10.000 m3
- Burðarlag flutningur og útlögn 3.700 m3
- Klæðing 33.960 m2
- Vegrið 480 m
Heildar magntölur fyrir brúargerðina á báðar brýr:
- Vegrið 188 m
- Gröftur 1.600 m3
- Stálstaurar, skurður 120 stk.
- Mótafletir 2.132 m2
- Steypustyrktarjárn 100 tonn
- Spennt járnalögn 21 tonn
- Steypa 1.180 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 1. desember 2025.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Íslenskir aðalverktakar hf., Reykjavík | 1.155.738.082 | 139,6 | 365.164 |
Eykt ehf., Reykjavík | 1.069.799.040 | 129,2 | 279.225 |
VA Verktakar ehf og Flakkarinn ehf., Reykjavík | 987.026.617 | 119,2 | 196.453 |
Húsheild ehf., Mývatni | 979.887.039 | 118,4 | 189.313 |
Þotan ehf., Bolungarvík | 862.080.475 | 104,1 | 71.506 |
Áætlaður verktakakostnaður | 827.956.296 | 100,0 | 37.382 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 790.574.090 | 95,5 | 0 |