Þingskálavegur (268), Heiði – Bolholt
Opnun tilboða 9. janúar 2024. Endurbygging, breikkun og klæðingu Þingskálavegar (268) frá Heiði á Rangárvöllum að Bolholti. Heildarlengd útboðskaflans er um 7,5 km.Verkið felst að stærstum hluta til í breikkun núverandi vegar sem er að jafnaði 5-6 m breiður, upp í 6,5 m breiðan veg. Vinna skal og leggja til burðarlag (0/22 mm) og styrktarlag (0/63 mm) og leggja klæðingu á allan vegkaflann með tilheyrandi lagfæringum á vegfláum til að auka umferðaröryggi. Færa þarf veglínu að hluta á um 300 m kafla um Heiðarlæk til vesturs.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 5.500 m3
- Bergskeringar í námu 18.500 m3
- Fyllingar 25.000 m3
- Styrktarlag 0/63 10.400 m3
- Burðarlag 0/22 8.200 m3
- Tvöföld klæðing 47.900 m2
- Frágangur fláa 62.900 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Áætlaður verktakakostnaður | 316.906.377 | 100,0 | 56.240 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 311.740.000 | 98,4 | 51.073 |
Þróttur ehf., Akranesi | 307.903.987 | 97,2 | 47.237 |
VBF Mjölnir ehf., Selfossi | 302.700.660 | 95,5 | 42.034 |
Þjótandi ehf., Hellu | 260.666.846 | 82,3 | 0 |