Suðurlandsvegur, tvöföldun, Vesturlandsvegur – Bæjarháls - Eftirlit
Fyrri opnunarfundur 7. maí 2020. Eftirlit með tvöföldun Suðurlandsvegar, frá núverandi vegi rétt sunnan Vesturlandsvegar og suður fyrir Bæjarháls. Tengja skal tvöföldun vegarins við núverandi vegyfirborð í báðum
endum og auk þess færa rampa frá Bæjarhálsi til aðlögunar að tvöfölduðum vegi. Breikka og lengja skal núverandi undirgöng undir Suðurlandsveg við Krókháls og endurgera stíg í gegnum þau.
Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnisvals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.
Eftirtaldir ráðgjafar skiluðu inn tilboði:
- Verkís hf., Reykjavík
- VSB Verkfræðistofa ehf., Hafnarfirði
- Mannvit verkfræðistofa, Kópavogi
- Hnit verkfræðistofa, Reykjavík
- VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík
- Lota ehf., Reykjavík
Föstudaginn 8. maí 2020 verður bjóðendum tilkynnt verðtilboð hæfra bjóðenda.