Opnun tilboða

Súðavík, stálþil við Langeyri 2023

12.12.2023

Opnun tilboða 12. desmber 2023. Súðavíkurhöfn óskaði eftir tilboðum í verkið „Súðavík stálþil við Langeyri 2023“. Verkið felst í byggingu á nýjum stálþilskanti sunnan Langeyrar við Súðavík í Álftafirði.

Helstu magntölur eru:

·         Jarðvinna, fylling og þjöppun.

·         Steypa 23 akkerissteina.

·         Reka niður 85 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ-24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

·         Steypa um 119 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðan en 1. nóvember 2024.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Borgarverk ehf., Borgarnesi 238.808.000 145,5 81.031
HAGTAK HF., Hafnarfirði 213.250.000 129,9 55.473
Áætlaður verktakakostnaður 164.102.600 100,0 6.326
Kranar ehf., Egilsstöðum 157.776.666 96,1 0