Opnun tilboða
Strætóstöðvar og færsla fráreinar í Suðurhlíð
Opnun tilboða 27. júní 2023. Gerð strætóstöðva í Fossvogi ásamt færslu og lengingar fráreinar
af Hafnarfjarðarvegi (40-01) að Suðurhlíð. Gera skal stíga að strætóstöðvum, þverun stígs á
Suðurhlíð og þrengja syðsta hluta Suðurhlíðar. Aðlaga skal hljóðmön vegna færslu fráreinar,
aðlaga fláa og ganga frá landmótun vegna afvötnunar stíga og gatna.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 4.900 m³
- Fyllingar 1.600 m³
- Styrktar- og burðarlagsefni úr námum 2.800 m³
- Malbik 2.700 m2
- Hellulögn 430 m2
- Kantsteinar 680 m
- Vegrið 90 m
- Yfirborðsfrágangur fláa og landmótun 4.500 m²
Verkinu skal lokið eigi síðar en 18. október 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Stéttafélagið ehf., Hafnarfirði | 148.629.800 | 126,6 | 5.630 |
Gleipnnir verktakar ehf., reykjavík | 143.000.000 | 121,8 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 117.386.500 | 100,0 | -25.614 |