Opnun tilboða

Skeiða- og Hrunamannavegur (30) um Stóru-Laxá, eftirlit og ráðgjöf (EES)

24.8.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í  eftirlit og ráðgjöf með byggingu brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg (3312) og við Auðsholtsveg (340-01) og gerð reiðstígs. Nýja brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m. 

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfismats og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð í 30. september 2022.

Nöfn þátttakenda í útboðinu:

  • Efla hf., Reykjavík
  • Hnit verkfræðistofa hf., Reykjavík
  • Mannvit hf., Kópavogi
  • VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík

Þriðjudaginn 31. ágúst 2021 verður tilkynnt stigagjöf í hæfnisvali og verðtilboð hæfra bjóðenda.