Opnun tilboða

Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði 2023-2025

31.10.2023

Opnun tilboða 31. október 2023. Ráðgjöf og eftirlit með vetrarþjónustu á Suðursvæði veturna 2023-2024 og 2024-2025.  Um er að ræða eftirtalin svæði: Reykjanes, Höfuðborgarsvæðið, Vesturlandsvegur, Hvalfjarðarvegur og Þingvallavegur, Hellisheiði og Þrengslavegur.
Verkið felst í gæðaeftirliti með hreinsun á snjó og krapa af vegum, vegköntum, gatnamótum og öðrum þeim mannvirkjum sem tilheyra veginum svo og eftirliti með hálkuvörn á vegyfirborði, mælingum á ástandi vegyfirborðs og upplýsingagjöf til vaktstöðvar um færðarástand og veður. Einnig felur verkið í sér ráðgjöf um nýtingu tækjaflota vetrarþjónustuverktaka.

Áætlaður akstur eftirlitsbifreiðar er 22.000 km og vinnutími fyrir hvort tímabilið 2.928 klst.

Gildistími samnings er til 31. mars 2025. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár, eitt ár í senn.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Garðaþjónusta Sigurjóns ehf., Reykjavík 99.704.000 155,8 39.010
Grafa og Grjót ehf., Hafnarfirði 94.456.000 147,6 33.762
Ísrefur ehf., Akureyri 76.460.800 119,5 15.767
Malbikstöðin ehf., Mosfellsbæ 74.092.800 115,8 13.399
Garðlist ehf., Reykjavík 69.070.336 107,9 8.377
Áætlaður verktakakostnaður 63.988.800 100,0 3.295
Heflun ehf., Lyngholti 62.668.800 97,9 1.975
Colas Ísland ehf., Hafnarfirði 60.693.600 94,9 0