Opnun tilboða

Lyngdalsheiðarvegur, eftirlit (seinni opnun)

27.5.2008

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit með gerð Lyngdalsheiðarvegar (365) milli Laugarvatns og Þingvalla.

Verkið felst í gerð nýs Lyngdalsheiðarvegar (365) á milli Þingvallavegar og Laugarvatnsvegar. Lengd útboðskaflans er um 15 km. Einnig á að gera um 1,7 km langa vegtengingu frá Lyngdalsheiðarvegi að núverandi Gjábakkavegi. Á mótum Lyngdalsheiðarvegar og Laugarvatnsvegar skal gera hringtorg, á mótum Lyngdalsheiðarvegar og Þingvallavegar skal gera T-gatnamót og á Lyngdalsheiðarvegi skal gera tvo áningarstaði.

Val bjóðanda fer fram á grundvelli hæfnivals og verðs og ber bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfni bjóðanda og verðtilboð.

Verkinu öllu skal að fullu lokið fyrir 15. október 2010.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Breiðumýri 2 á Selfossi og Borgarúni 7 í Reykjavík (móttaka), frá og með mánudeginum 7. apríl 2008. Verð útboðsgagna er 8.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. maí 2008 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 þann dag og lesið upp hverjir hafa skilað inn tilboðum.

Síðari opnunarfundur verður þriðjudaginn 27. maí 2008 kl. 14:15 þar sem lesnar verða upp einkunnir bjóðenda í hæfnimati og verðtilboð opnuð.

Seinni opnunarfundur, 27. maí 2008. 

 

Bjóðandi Hæfimat Tilboð kr.
Áætlaður verktakakostnaður 25.921.000
Almenna verkfræðistofan, Reykjavík 39 Verðtilboð ekki opnað.
Línuhönnun hf., verkfræðistofa, Reykjavík 42 30.800.000
VSÓ Ráðgjöf ehf., Reykjavík 42 20.000.000
VST Rafteikning 37 Verðtilboð ekki opnað.