Jökuldalsvegur (923), Anrórsstaðir - Langagerði
Þann 26. september 2023 voru opnuð tilboð í endurbyggingu Jökuldalsvegar (923) á um 4,6 km kafla frá Arnórsstöðum að Langagerði. Um er að ræða endurbyggingu núverandi vegar á öllum vegkaflanum. Gerðar eru lagfæringar á plan og hæðarlegu vegarins á köflum.
Helstu magntölur eru:
- Bergskeringar 7.450 m3
- Fyllingar 31.700 m3
- Fláafleygar 48.200 m3
- Ræsalögn 460 m
- Styrktarlag 24.200 m3
- Burðarlag 5.400 m3
- Klæðing 31.630 m2
- Vegrið 1.770 m
- Netgirðingar 2.350 m
Verkinu skal að fullu lokið 1. júlí 2025.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Þ.S Verktakar ehf | 492.845.168 | 126,9 | 133.479 |
Grafa og grjót ehf. | 388.530.100 | 100,0 | 29.164 |
Áætlaður verktakakostnaður | 388.422.907 | 100,0 | 29.057 |
Héraðsverk ehf. | 359.366.109 | 92,5 | 0 |