Opnun tilboða

Hvalfjarðargöng, rekstur og þjónusta 2023-2025

20.6.2023

Opnun tilboða 20. júní 2023. Vegagerðin óskar eftir tilboðum í rekstur og þjónustu í Hvalfjarðargöngum árin 2023-2025. Í aðalatriðum felst verkið í eftirfarandi:

  •     Útkallsþjónustu, þ.e. að bregðast við útköllum vegna bilana eða atvika sem verða í göngunum og bregðast       þarf strax við. 
  •      Umferðarstjórnun þegar göngunum er lokað eða umferð takmörkuð í gegnum þau, t.d. vegna úttekta                og/eða viðhalds.
  •      Þátttöku og aðstoð vegna funda og æfinga viðbragðsaðila. 
  •      Reglubundnu eftirliti og ástandsgreiningum.
  •       Viðhaldsvinnu á búnaði. 
Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Colas Ísland ehf., hafnarfirði 392.287.508 148,3 101.223
Árvirkinn ehf., Árborg 391.102.200 147,8 100.038
Rafal ehf., Hafnarfirði 311.360.704 117,7 20.296
Meitill - GT Tækni ehf., Grundartanga 291.064.300 110,0 0
Áætlaður verktakakostnaður 264.533.600 100,0 -26.531