Hringvegur (1), veðurstöð í Eldhrauni – Litli-Brestur
Opnun tilboða 6. febrúar 2024. Styrking og endurmótun á 4,9 km kafla Hringvegarins (1-a6), frá veðurstöð í Eldhrauni í austri að Litla-Bresti í vestri.
Um er að ræða endurmótun á 4,9 km vegarkafla Hringvegarins, milli veðurstöðvar í Eldhrauni í austri og Litla-Brests í vestri í Skaftárhreppi. Fræsa skal núverandi klæðingu saman við burðarlag, breikka, bæta við burðarlagi og að lokum leggja klæðingu yfir. Vinna skal efni í styrktarlag og burðarlag úr bergnámu á svæðinu. Verktaki skal tvískipta verkinu þannig að einungis helmingur vegarins sé í framkvæmd í einu.
Helstu magntölur eru:
- Bergskering í námu 14.000 m3
- Skeringar 2.550 m3
- Fláafleygar 4.700 m3
- Styrktarlag 2.800 m3
- Burðarlag 0/22 9.500 m3
- Tvöföld klæðing 42.000 m2
- Gróffræsun 38.000 m2
- Frágangur fláa og vegsvæðis 37.000 m2
Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. september 2024.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Framrás ehf., Vík | 225.486.321 | 107,7 | 30.311 |
Áætlaður verktakakostnaður | 209.401.061 | 100,0 | 14.226 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 195.174.900 | 93,2 | 0 |