Opnun tilboða

Hringvegur (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, eftirlit og ráðgjöf (EES)

30.6.2021

Vegagerðin óskaði eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með útboðsverkinu Hringvegar (1) um Hverfisfljót og Núpsvötn, Verkið innifelur byggingu brúa á Hverfisfljót og Núpsvötn ásamt endurgerð vegkafla beggja vegna. Að auki er hluti af verkinu gerð áningarstaða við báðar brýrnar.

Val bjóðanda fór fram á grundvelli hæfismats og verðs og bar bjóðanda að leggja fram tilboð sitt í tveimur hlutum, þ.e. upplýsingar um hæfi bjóðanda og verðtilboð.

Verklok framkvæmdarinnar eru áætluð 1. nóvember 2022.

Eftir lok tilboðsfrests, föstudaginn 25. júní 2021, var bjóðendum tilkynnt um nöfn þátttakenda í
útboðinu. Miðvikudaginn 30. júní 2021 var verðtilboð hæfra bjóðenda opnað. Allir bjóðendur
uppfylltu hæfisskilyrði útboðsins og stóðust hæfnimat.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Efla hf., Reykjavík 49.476.000 133,7 5.726
Hnit, verkfræðistofa hf., Reykjavík 46.166.750 124,8 2.417
Mannvit hf., Kópavogi 43.750.000 118,2 0
Áætlaður ráðgjafakostnaður 37.000.000 100,0 -6.750