Opnun tilboða

Hreinsun þjóðvega í Reykjavík og Hvalfjarðargöngum 2023-2025

9.5.2023

Opnun tilboða 9. maí 2023. Hreinsun þjóðvega í Reykjavík og Hvalfjarðargöngum árin 2023-
2025. Verkið felur í sér sópun meðfram kantsteinum, þvott á gatnamótum og tilheyrandi umferðareyjum, hreinsun svæða meðfram þjóðvegum ásamt þvotti á Hvalfjarðargöngum með vélsópum, vatnsbílum, sugum og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.

Helstu magntölur á ári fyrir þjóðvegi í Reykjavík eru:

  •  Sópun meðfram kantsteinum 544.024 m
  •  Þvottur á gatnamótum og umferðareyjum 13.840 m2
  •  Sérverkefni, viðbótarverk, götusópur 30 klst.
  •  Sérverkefni, viðbótarverk, vatnsbíll 30 klst.
  •  Sérverkefni og viðbótarverk, ryksugubíll 30 klst.
  •  Sérverkefni og viðbótarverk, fylgdarbíll 30 klst.
  •  Ruslahreinsun meðfram þjóðvegum 13 stk.

Helstu magntölur á ári fyrir Hvalfjarðargögn eru:

  •  Sópun meðfram kantsteinum 138.240 m
  •  Hvalfjarðagöng, hálfþvottur 2 stk.
  •  Hvalfjarðargöng, heilþvottur 1 stk.

Verkinu skal að fullu lokið 15. mars 2025.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Áætlaður verktakakostnaður 159.892.480 100,0 13.128
Hreinsitækni ehf., Reykjavík 146.764.832 91,8 0