Opnun tilboða

Hreinsun niðurfalla á Höfuðborgarsvæðinu og Suðursvæði 2023-2026

9.5.2023

Opnun tilboða 9. maí 2023. Hreinsun niðurfalla og svelgja á Höfuðborgarsvæðinu og Suðursvæði (ásamt
Hvalfjarðagöngum) með holræsahreinsibíl og öðrum tækjum sem henta þykir. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn.

Helstu magntölur fyrir hvert ár eru:

  •  Hreinsun niðurfalla 2.000 stk.
  •  Hreinsun svelgja 50 stk.
  •  Hreinsun fráveitulagna 40 klst.
  •  Myndun fráveitulagna 250 m
  •  Sérverkefni, viðbótarverk, holræsahreinsibíll 30 klst.

Verkinu skal að fullu lokið 31. maí 2026.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Íslenska gámaflelagið ehf., Reykjavík 130.950.000 255,9 88.650
Hreinsitækni ehf., Reykjavík 88.023.978 172,0 45.724
Verkval ehf., Akureyri 59.859.600 117,0 17.560
Áætlaður verktakakostnaður 51.180.000 100,0 8.880
Fóðrun ehf., Mosfellsbæ 42.300.000 82,6 0