Opnun tilboða
Efnisvinnsla á Vestursvæði 2023, Klettsháls (EES-hraðútboð)
Opnun tilboða 13. júní 2023. Efnisnám og vinnslu steinefna úr námum á Klettshálsi í Reykhólasveit. Um tvo vinnslustaði er að ræða með u.þ.b. 1 km á milli náma.
Helstu magntölur eru:
- Klæðingarefni 8/16 mm 4.500 m3
- Klæðingarefni 6/8 mm 500 m3
- Hálkuvarnarefni 0/6 mm 1.700 m3
- Úrharp 0/8 mm 2.500 m3
- Styrktarlag 12.500 m3
- Burðarlag 0/22 mm 3.500 m3
- Burðarlag 0/45 mm 3.800 m3
- Berglosun 20.000 m3
- Flutningur efnis 4.500 m3
Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 15. desember 2023.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Steypustodin námur ehf., Hafnarfirði | 149.547.500 | 102,9 | 22.225 |
Áætlaður verktakakostnaður | 145.321.240 | 100,0 | 17.999 |
Skering ehf., Hvalskeri | 127.322.500 | 87,6 | 0 |