Opnun tilboða
Dalvíkurhöfn – Hafskipabryggja, stálþilsrekstur 2017
Tilboð opnuð 24. október 2017. Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar óskaði eftir tilnboðum í framkvæmdir við Hafskipsbryggju í Dalvíkurhöfn.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Steypa 48 ankerisplötur.
· Reka niður 126 stk. af tvöföldum stálþilsplötum og ganga frá stagbitum og stögum.
· Jarðvinna, fylla upp fyrir innan þil um 18.300 m3 og grjótröðun við enda þils.
· Steypa um 175 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. maí 2018.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Ístak hf., Mosfellsbæ | 420.839.231 | 222,4 | 247.277 |
D.ingverk ehf., Hafnarfirði | 287.773.200 | 152,1 | 114.211 |
Hagtak hf., Hafnarfirði | 236.325.250 | 124,9 | 62.763 |
Áætlaður verktakakostnaður | 189.195.000 | 100,0 | 15.633 |
Árni Helgason ehf., Ólafsfirði | 173.562.200 | 91,7 | 0 |