Opnun tilboða

Borgarfjörður eystri - Löndunarbryggja 2023

10.10.2023

opnun tilboða 10. október 2023. Hafnir Múlaþings óskuðu eftir tilboðum í að byggja harðviðarbryggju við höfnina á Borgarfirði eystra.

Helstu verkþættir og magntölur eru:

·         Jarðvinna: gröftur fyrir landvegg, fylling og grjótvörn,

·         Steypa 25 m landvegg

·         Smíði og uppsetning á 3 grjótkistum úr harðviði

·         Reka niður 4 bryggjustaura úr harðviði

·         Byggja um 156 m² bryggju úr harðviði

·         Uppsetning á 15 stk.DD250 þybbum á bryggju

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2024.

Bjóðandi Tilboð kr. Hlutfall Frávik þús.kr.
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum 77.706.725 111,3 6.722
Úlfsstaðir ehf., Reykjavík 70.984.251 101,7 0
Áætlaður verktakakostnaður 69.816.000 100,0 -1.168