Opnun tilboða
Borgarfjörður eystri - Löndunarbryggja 2023
Hafnir Múlaþings óskuðu eftir tilboðum í að byggja harðviðarbryggju við höfnina á Borgarfirði eystra.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
· Jarðvinna: gröftur fyrir landvegg, fylling og grjótvörn,
· Steypa 25 m landvegg
· Smíði og uppsetning á 3 grjótkistum úr harðviði
· Reka niður 4 bryggjustaura úr harðviði
· Byggja um 156 m² bryggju úr harðviði
· Uppsetning á 15 stk.DD250 þybbum á bryggju
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júlí 2024.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum | 83.277.003 | 138,3 | 4.222 |
Úlfsstaðir ehf., Mosfellsbæ | 79.055.393 | 131,3 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 60.211.000 | 100,0 | -18.844 |