Auglýst útboð

Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2024, blettanir með klæðingu.

1.3.2024

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í Yfirlagnir á Vestursvæði og Norðursvæði 2024, blettanir með klæðingu.

Helstu magntölur fyrir hvort ár:

- Blettun á Vestursvæði með þjálbiki                        160.000 m2

- Blettun á Norðursvæði með þjálbiki                        150.000 m2

- Flutningur steinefna                                          107.900 m3 *km

- Flutningur bindiefna                                             36.864 m3 *km    

Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 4.  mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 19. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.