Yfirlagnir á Vestursvæði 2024, klæðing
Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Vestursvæði með klæðingu árið 2024.
Helstu magntölur eru:
· Hjólfarafylling með klæðingu 10.000 m2
· Klæðing, útlögn með þjálbiki 370.000 m2
· Klæðing, útlögn með bikþeytu 10.000 m2
· Klæðing, kíling, útlögn 20.000 m2
· Klæðing, yfirsprautun 10.000 m2
· Klæðing, flutningur steinefnis 135.000 m3 * km
· Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis 90.000 m3 * km
· Formerkingar, línur 60.000 m
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 25. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign