Auglýst útboð

Yfirlagnir á Suðursvæði og Austursvæði 2017 – 2018, blettanir með klæðingu

7.11.2016

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í blettanir með klæðingu á Suðursvæði og Austursvæði á áunum 2017 og 2018.

Helstu magntölur:

  • Blettun (k1) útlögn á Suðursvæði   109.500 m2 hvort ár
  • Blettun (k1) útlögn á Austursvæði 74.200 m2 hvort ár

Verki skal að fullu lokið 1. september 2018.

Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Búðareyri 11 – 13 á Reyðarfirði,  Breiðumýri 2  á Selfossi og Borgartúni 7 í Reykjavík (móttaka) frá og með þriðjudaginn 8. nóvember 2016. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.

Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl 14:00 þriðjudaginn 29. nóvember 2016 og verða þau opnuð þar kl 14:15 þann dag.