Yfirlagnir á Suðursvæði 2024, klæðing
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirlagnir með klæðingu á Suðursvæði 2024.
Helstu
magntölur eru:
- Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar með þjálbiki 258.000 m2
- Yfirsprautun á klæðingu 5.000 m2
- Hjólfarafylling með einföldu lagi klæðingar 5.000 m2
- Flutningur steinefna 3.870 m3
- Flutningur bindiefna 465 m3
Verki skal að fullu lokið 1. september 2024
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með miðvikudeginum 28. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. mars 2024.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.