Auglýst útboð

Yfirlagnir á Norðursvæði 2024, klæðing

24.3.2024

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir á Norðursvæði með klæðingu árið 2024.

Helstu magntölur eru:

- Yfirlagnir með einföldu lagi klæðingar                   550806 m2          

- Yfirlögn með kílingu                                                    52668 m2

- Flutningur steinefna                                                       7653 m3  

- Flutningur bindiefna                                                        984 m3

 Verki skal að fullu lokið 1. september 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 25. mars 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 9. apríl 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign