Auglýst útboð

Yfirborðsmerkingar, sprautuplast á nyrðri hluta Vestursvæðis, Norðursvæði og Austursvæði 2024-2026

23.1.2024

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í yfirborðsmerkingar akbrauta með sprautuplasti á þremur svæðum Vegagerðarinnar, á nyrðri hluta Vestursvæðis, Norðursvæði og Austursvæði. Um er að ræða merkingu miðlína, annarra lína og yfirlagnakafla á vegum með bundið vegyfirborð árin 2024-2026. 

Verkið er boðið út til þriggja ára með möguleika á framlengingu verksamnings sumarið 2027 og sumarið 2028. 

Verkið felst í yfirborðsmerkingum akbrauta. Áætlað verkmagn er 1.658 km.  

Helstu magntölur, miðað við eitt ár, eru:  

  • Sprautuplastaðar miðlínur 0,7 mm þykkar     1.100 km 
  • Sprautuplastaðar miðlínur 1,0 mm þykkar        280 km 
  • Sprautuplastaðar miðlínur 1,5 mm þykkar        270 km 
  • Plaststrik b = 200 mm, þykkt = 1,0 mm                 4 km 
  • Plaststrik b = 200 mm, þykkt = 1,5 mm                 4 km 
  • Viðverudagar                                                         100 dagar 

 Verki skal að fullu lokið 1. október ár hvert.

Útboðsgögnin eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með miðvikudeginum 24. janúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign