Auglýst útboð

Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil

20.2.2024

Hafnarstjórn Vopnafjarðar óskar eftir tilboðum í verkið „Vopnafjörður, lenging Löndunarbryggju, dýpkun og stálþil “. Helstu verkþættir eru: 

·         Dýpkun á klapparbotni, um 11.157 m3 og sprengd rás fyrir þil.

·         Jarðvinna, fylling og þjöppun.

·         Steypa 42 akkerissteina.

·         Reka niður 106 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

·         Steypa um 137 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með þriðjudeginum 20. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. mars 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign