Auglýst útboð

Viðhald malarvega á Suðursvæði 2023-2024, Þjónustustöð í Vík, vegheflun, vestur

2.4.2023

Vegagerðin býður hér með út vegheflun á malarvegum á Suðursvæði, þjónustustöð í Vík, vestur, fyrir árin 2023 og 2024. 

Helstu magntölur á ári eru áætlaðar: 

  • Vegheflun:  495 km 

Verkinu skal að fullu lokið 31. desember 2024.  Heimild er til framlengingar samnings um tvö ár með samþykki beggja aðila.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með mánudeginum 3. apríl 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 2. maí 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.  

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign