Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2024-2027, höfuðborgin
Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, í höfuðborginni.Samningur sem gerður verður í framhaldi af útboði þessu skal gilda í þrjú ár frá töku tilboðs með heimild um framlengingar til tveggja ára, eitt ár í senn.
Akstur vörubifreiða á snjómokstursleiðum er áætlaður 50.000 km á ári.
Verklok eru í apríl 2027.
Útboðsgögn
eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá
og með föstudeginum 2. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því
útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 5. mars 2024
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.
Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.
Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign.