Vetrarþjónusta 2018-2021, Sauðárkrókur – Ketilás
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum:
Sauðárkróksbraut (75) Frá Sauðárkróksbrautar að Siglufjarðarvegi. 14 km
Siglufjarðarvegur (76) Frá Sauðárkróksbrautar og að Ketilási. 55,6 km
Hólavegur (767) Frá Siglufjarðarvegi að Hólastað. 11 km
Heildarlengd vegakafla er 80,6
km.
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur mokstursbíls 25.600 km
Verklok eru 30. apríl 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og
með
miðvikudeginum 11. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 25. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.