Auglýst útboð
Vetrarþjónusta 2018-2021, Holtavörðuheiði - Hvammstangavegamót
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í vetrarþjónustu árin 2018-2021 á eftirtöldum leiðum::
- Hringvegur
(1) Norðurárdalsvegur
– Innstrandavegur 42,5 km.
- Hringvegur
(1) Innstrandavegur
– Hvammstangavegur 28,1 km.
- Reykjaskólavegur
(7020) Hringvegur
- Byggðasafni 1,06 km.
- Miðfjarðarvegur
(704) Hringvegur
– Hótel Laugabakki 1,4 km.
- Innstrandavegur
(68) Hringvegur
- Laxárdalsvegur 9,1
km.
Heildarlengd vegakafla er 82,2 km.
Helstu magntölur á ári eru:
- Akstur mokstursbíls 35.700 km
Verklok eru 30. apríl 2021.
Útboðsgögn verða seld hjá Vegagerðinni Miðhúsavegi 1 á Akureyri og Borgartúni 7 í Reykjavík frá og með miðvikudeginum 11. apríl 2018. Verð útboðsgagna er 2.000 kr.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 25. apríl 2018 og verða þau opnuð þar kl. 14:15 sama dag.