Auglýst útboð

Verðkönnun: Álftanesvegur (415), vegamót við Garðahraunsveg, ráðgjöf og eftirlit

27.11.2023

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í eftirlit og ráðgjöf með verkinu Álftanesvegur (415-04), vegamót við Garðahraunsveg. Verkið felst í tilfærslu á vegamótum Álftanesvegar og Garðahraunsvegar, þ.m.t. breikkun Álftanesvegar á um 400 m kafla. Einnig er um að ræða nýbyggingu Garðahraunsvegar og breytingu á vegamótum Garðahraunsvegar og Garðaholtsvegar, samtals um 600 m. Inn í verkinu er einnig nýbygging göngu- og hjólastíga, samtals um 1.400 m. Verklok eru áætluð 31. ágúst 2024.

Verkhönnunargögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudaginn 28. nóvember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 7. desember 2023.