Auglýst útboð

Súðavík, stálþil við Langeyri 2023

28.11.2023

Súðavíkurhöfn óskar eftir tilboðum í verkið „Súðavík stálþil við Langeyri 2023“. Verkið felst í byggingu á nýjum stálþilskanti sunnan Langeyrar við Súðavík í Álftafirði.

Helstu magntölur eru:

·         Jarðvinna, fylling og þjöppun.

·         Steypa 23 akkerissteina.

·         Reka niður 85 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð GHZ-24-2 og ganga frá stagbitum og stögum.

·         Steypa um 119 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.

Verkinu skal lokið eigi síðan en 1. nóvember 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með þriðjudeginum 28. nóvember 2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 12. desember 2023.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð.