Auglýst útboð

Sauðárkrókur, endurbygging Efri garðs 2023

12.6.2023

Sveitarfélagið Skagafjörður óskar eftir tilboðum í verkið Sauðárkrókur, endurbygging Efri garðs 2023:
Helstu magntölur:
  • Brjóta og fjarlægja kant, polla og þekju á núverandi bryggju.
  • Grafa fyrir akkerisstögum og ganga frá stagbita og stögum.
  • Jarðvinna, fylling og þjöppun.
  • Reka niður 67 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ20-700 og ganga frá stagbitum og
    stögum.
  • Koma fyrir 59 bakþilsplötum ásamt stagbita við bakþil.
  • Steypa um 89 m langan kantbita með pollum, kanttré, stigum og þybbum.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. júní 2024.

Tilboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með mánudeginum  12. júní  2023 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 27. júní 2023. 

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð. 

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign