Auglýst útboð

Reykhólahreppur – Karlsey, þekja og lagnir 2024

4.2.2024

Hafnarstjórn Reykhólahrepps óskar eftir tilboðum í verkið „Reykhólahreppur – Karlsey, þekja og lagnir 2024“.  Helstu verkþættir og magntölur eru:

·         Steypa upp 1 stk. rafbúnaðarhús og 3 stk. stöpla undir ljósamöstur

·         Leggja ídráttarrör fyrir rafmagn og koma fyrir rafmagnskápum

·         Leggja vatnslögn og koma fyrir vatnsbrunnum

·         Grófjafna yfirborð og þjappa, fínjafna undir steypu

·         Slá upp mótum, járnbinda og steypa þekju, alls um 1.370 m²  

 Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. nóvember 2024.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign frá og með þriðjudeginum 6. febrúar 2024 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 20. febrúar 2024.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Leiðbeiningar fyrir útboðsvefinn TendSign